Hundahlýðninámskeið, dagana 24. – 27. mars 2022
HundaAkademían stefnir á að halda hundanámskeið í Fjarðabyggð, í Dalahöllinni í Norðfjarðarsveit.
Þetta námskeið er fyrst og fremst ætlað þeim hundum sem eiga heima í Fjarðabyggð. Ef það eru laus pláss getum við tekið inn hunda sem búa í öðrum sveitafélögum.
Námskeiðið verður sannkallað hrað-námskeið þar sem við hittumst í 3 daga i röð og 2 klst hver tími. Þá förum við yfir helstu hlýðni æfingar sem gagnast ykkur í daglegu lífi sem og grunnur í að æfa áfram hlýðni, veiði, sýningar, hundafimi, spor, nosework og allt annað skemmtilegt.
Við förum meðal annars yfir:
Slökun, heima við og kringum áreiti eins og hunda/gesti.
Hlýðni æfingar eins og sitja, liggja, kyrr og ætlum svo að fá þrusu gott innkall.
Sjálfstjórn og góðar venjur.
Taumganga og hælganga, og munin þar á milli.
Spora æfingar og aðrar leiðir til að gefa hundinum andlega örvun.
Lærum að lesa í merkjamál hunda og skilja þeirra atferli og þarfir.
Stress hegðun og lausnir við því.
Fyrirlestrar á netinu sem þið horfið á heima. Þar förum við yfir merkjamál og stress, góðar venjur, jákvæða styrkingu og óæskilega hegðun. Samskipti hunda við börn. Gelt og lausnir við því. Innkall og neyðarinnkalls æfingar.
Til þess að fá 50 % afslátt af hundaleyfisgjöldum í Fjarðabyggð þá þarf að…
…mæta í alla tímana
…klára að horfa á fyrirlestrana á netinu.
…skila inn léttu prófi í lokin, sem inniheldur spurningar úr fyrirlestrum og hundasamþykkt Fjarðabyggðar.
Hægt er að byrja að horfa á fyrirlestrana um leið og þið pantið námskeiðið og vera búin að horfa á allt þegar námkeiðið byrjar. Við mælum með því, þá fáið þið meira út úr þessari helgi. Einnig er hægt að horfa eftir helgina en þá fáið þið viðurkenningaskjalið sent þegar þið hafið lokið við prófið.
Þið fáið svo eftirfylgni og aðgang að öllu efni í 3 vikur eftir námskeiðið. Það er þá allir fyrirlestarnir, allar æfingar með hundana auk þess að fá auka æfingar til að prófa heima.
Uppbygging námskeiðs.
Hópa-námskeið:
Verð:
Með hund: 35.000kr. per hund.
Hundlaust-pláss: 20.000kr per hund.
3 skipti. Hver tími er í 2 klst. Samtals 6 klst. verklegt + 5 klst. fyrirlestrar á netinu.
Ath að sum stéttarfélög styrkja hundanámskeið eins og VR og Efling. Eftir námskeið fáið þið afslátt af hundaleyfisgjöldum í Fjarðabyggð.
Uppfært 23/3: Hægt að bætast við nokkur laus pláss í alla hópa:)
Dagsetningar 24. – 27. Mars 2022.
Hópur 1: Fimmtudagur og föstudagur kl. 17. Laugardagur kl. 12. –
Hópur 2: Fimmtudagur og föstudagur kl. 19. Laugardagur kl. 14. –
Hópur 3: Föstudagur kl. 13. Laugardagur og sunnudagur kl. 09:30. –
Einka-námskeið – Fullt.
Verð: 40.000kr.
Innifelur: 4 skipti. Hver tími er 1 klst. Samtals 3 klst. verklegt + 5 klst. fyrirlestrar á netinu. Síðasti tíminn er í gegnum Zoom eftir nokkrar vikur.
Hundlaust pláss í hópatímana.
Hentar þeim hundum sem geta ekki verið í hópatíma. Hafið samband sérstaklega til að meta hvort hentar betra.
Hvort á ég að velja hundlaust pláss eða einka-námskeið?
Það geta ekki allir hundar verið með öðrum hundum í hóp. Þeir geta verið litið umhverfisþjálfaðir og stressast mikið upp í kringum aðra hunda, eða of hræddir og geta þannig ekki tekið þátt í tímanum. E Þá hentar vel að taka annað hvort hundlaust-pláss eða einka-námskeið. Tíkur sem eru að lóða þessa helgi færa sig yfir á hundlaust-pláss, eða einka-námskeið.
Hundlaust pláss:
Hundlaust-pláss virkar þannig að þú mætir án hundsins í hópatíma. Hlustar á okkur og horfir á alla gera æfingar. Þú færð að spyrja og taka þátt eins og hinir sem eru með hunda í tímanum. Þannig færðu allar upplýsingar og æfir svo hundinn heima eftir tímana og tekur upp myndbönd af völdum æfingum og sendir okkur.
Hentar þeim sem eru ekki með nein vandamál sem þarf að vinna í og vilja bara gera æfingar heima í frið og ró.
Til að sækja um afslátt af hundaleyfisgjöldum þarftu að æfa valdar æfingar heima ásamt horfa á fyrirlestra og skila inn prófi í lokin. Skilafrestur eru 3 vikur.
Einka-námskeið – Fullt
Það verða takmörkuð pláss fyrir einka-tíma námskeið og viljum við endilega fá þá hunda inn hér sem þurfa meiri aðstoð með atferlis-vandamál. Stress, gelt, hræðslu, kvíða svo eitthvað sé nefnt. Til þess að gefa eiganda verkfæri til þess að vinna með þessi atriði.
Einka-námskeið hentar einnig þeim sem komast ekki í hópatímana eða vilja fá að vera ein á námskeiði með leiðbeinda til að geta gert æfingar í frið og ró.
Ath. allir sem bóka einka-námskeið fá einnig hundlaustpláss í hópa tímana til að fá allar upplýsingar og fræðslu sem þar verður farið yfir.
Til sækja um afslátt af hundaleyfisgjöldum þarftu að æfa valdar æfingar heima ásamt horfa á fyrirlestra og skila inn prófi í lokin. Skilafrestur eru 3 vikur.
Við stefnum á að koma oftar til ykkar ef vel gengur þessa helgi. Ef þú hefur spurningar getur þú sent okkur póst á hunda@hunda.is
Skráningaferlið.
Þú byrjar á því að bóka námskeið með því að ganga frá greiðslu. Eftir það sendum við þér tölvupóst og fáum frekari upplýsingar um ykkur og hundinn.
Afbókunarskilmálar.
Ef þið þurfið að afbóka þá er í boði að eiga inneign hjá okkur upp í næsta námskeið eða breyta skráningu yfir í fjarkennslu. Það má einnig selja öðrum plássið.
Þurfið þið hinsvegar að fá endurgreitt þá gildir eftirfarandi:
Þið fáið 100% endurgreitt ef þið afbókið 14 dögum fyrir upphaf námskeiðs.
Þið fáið 50% endurgreitt ef þið afbókið 3 dögum fyrir upphaf námskeiðs.
Þegar eru 3 dagar eða minna í upphaf námskeið er ekki endurgreitt, en hægt að fá inneign í næsta námskeið eða fjarkennslu.
Hópa-námskeið
Þrír hópar að velja á milli.
35.000
- Greiðsla staðfestir plássið
- Fáið aðgang að fyrirlestrum fyrirfram
- Pláss með hund
Greiða með korti
Þú færist yfir á greiðslusíðu SaltPay. Ef þú vilt frekar millifæra, þá þarf að senda kvittun á hunda@hunda.is
Kt: 530821-0560
R.: 515-26-8112
Með hund
Hundlaust-pláss
Þrír hópar að velja á milli
20.000
- Greiðsla staðfestir plássið
- Fáið aðgang að fyrirlestrum fyrirfram
- Hundlaust pláss
Greiða með korti
Þú færist yfir á greiðslusíðu SaltPay. Ef þú vilt frekar millifæra, þá þarf að senda kvittun á hunda@hunda.is
Kt: 530821-0560
R.: 515-26-8112
Einka-námskeið
Innifalið hundlaust pláss í hópatíma
40.000
- Greiðsla staðfestir plássið
- Fáið aðgang að fyrirlestrum fyrirfram
- Fylla þarf út ítarlegan spurningalista og senda tilbaka fyrir fyrsta tíma.
Full bókað
Þú færist yfir á greiðslusíðu SaltPay. Ef þú vilt frekar millifæra, þá þarf að senda kvittun á hunda@hunda.is
kt: 530821-0560
R.: 515-26-8112
Staðsetning
Námskeiðið verður í Fjarðabyggð, í Dalahöllinni í Norðfjarðarsveit.