Taumgöngunámskeið

Að njóta þess að vera úti saman í göngutúr skiptir öllu máli. Ef hundurinn á það til að vera æstur, hræddur, of glaður, smá stressaður, eða hreinlega á bara eftir að læra að toga ekki í tauminn er þetta námskeið fyrir þig.
Stundum er það að labba, aðeins of spennandi svo hundurinn missir sig og togar nánast af þér hendina. Við vinnum með væntingastjórnun og slökun á þessu námskeiði ásamt taumgöngu. Að geta slappað af úti skiptir öllu máli til þess að fá góða taumgöngu.

Á námskeiðinu förum við vel í taumgönguna með því markmiði að hundurinn geti labbað með slakan taum, þefað í rólegheitum, að hann geti slappað af úti og nái að veita þér athygli þegar þess þarf.

Ath. að þetta er ekki hælgöngunámskeið, þótt við munum fara í gegnum æfingar sem fá hundinn til að labba við hliðina á þér.

Allir geta verið með hvort sem þú/hundurinn hefur áður farið á námskeið eða ekki.

Þetta námskeið eru 3 skipti eða  í 4 klst alls.

Sunnudag 14. apríl er tími inni í 1,5 klst þar fer ég yfir æfingar sem þig gerið með hundinum ykkar heima.

Miðvikudag 17.apríl kl. 18 í 1 klst munum við halda áfram að setja inn æfingar

Miðvikudag  24. apríl kl. 17:30 – 1,5 klst munum við vera með útitíma

Kostar: 16.500 kr.

Ef þið eruð með hund sem á erfitt með að vera innan um aðra hunda þá komið þið í tímann án hundsins og lærið þar aðferðir og æfingar sem þið vinnið með í rólegu umhverfi, svo getið þið komið með hundinn í seinni tímana eða bætt við einum einkatíma við í lokin sem kostar fyrir þátttakendur kr. 10.000

 
 

Næsta taumgöngunámskeið 3 skipti - 4 klst

Skráning