Breyttist góði hvolpurinn þinn í sjálfstæðan og óþekkan hund þegar hann fór á kynþroskaskeiðið?

Ertu með frábæran hund í alla staði, nema að það vantar upp á meiri þjálfun í nokkrum atriðum t.d. að fá athygli hans þegar þið eru úti?

Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á að gera hundinn betri í öllum aðstæðum. Hundurinn á að velja að einbeita sér að eiganda í aðstæðum þar sem er mikið áreiti og að átta sig á því að stundum er bara best að slaka á. 

Æfingar sem við förum meðal annars yfir.

Slaka á í bælinu
Hvernig við getum afnæmt triggera
Mæta hundum og öðru áreiti

Slökun í áreiti.
Andleg örvun
Fjarlægðastjórnun, t.d. að stoppa á hlaupum.
Væntingastjórnun, venja hundinn á hvað gildir í mismunandi aðstæðum. Það er t.d. ekki alltaf party og stuð þótt við förum á nýjan stað.
Góðar venjur og sjálfstjórn, sumt vill maður bara að hundurinn gerir sjálfkrafa án þess að við þurfum að skipa fyrir.
Innkall með áherslu á neyðarinnkallsæfingar.
Athyglis æfingar.
Hælganga og taumganga og muninn þar á milli.
Spor og aðrar leita æfingar 

Innifalið í námskeiðinu eru fyrirlestrar um merkjamál, stress og gelt. Aukið gelt er einmitt algeng áskorun á þessum tíma þar sem varðeðlið er farið að sýna sig.

Allir hundar sem eru 5—6 mánaða og eldri geta verið með. Eina krafan er að hann sé ekki reaktívur á aðra hunda, sem sagt að hann getur verið í hóp með öðrum hundum. Þeir fá ekki að heilsast í tímanum og eru ávalt í taum en þurfa að geta verið nálægt hvort öðru annað slagið þegar verið er að æfa. Við reynum samt alltaf að virða persónulega rými hundana og halda fjarlægð þegar við getum.

 

Næsta námskeið

Námskeiðið kostar 45.000kr og er 8 skipti. Kennt er að mestu innandyra en það er einn tími úti sem farið er í spora-æfingu.

Til að staðfesta plássið þarf að ganga frá greiðslu. Hægt er að greiða með millifærslu eða greiðslu síðu hér að neðan. Ath að ef þið ætlið að nýta stéttarfélagsstyrk þarf greiðandi að vera sá sem ætlar að nýta styrkinn.  VR og Efling styrkja sem og nokkur önnur félög í formi tómstunda, fræðslu, eða varssjóðsstyrk.

Ef þú vilt millifæra 
HundaAkademían
kt: 530821-0560
Reikngsnúmer: 515-26-8112
Senda þarf kvittun á hunda@hunda.is
Skýring: Nafn á hundi + tegund
Námskeiðið kostar 45.000kr

Táningastælar

kr 45.000
  • Ath að sum stéttarfélög styrkja hundanámskeið