Taumgöngunámskeið
Að njóta þess að vera úti saman í göngutúr skiptir öllu máli. Ef hundurinn á það til að vera æstur, hræddur, of glaður, smá stressaður, eða hreinlega á bara eftir að læra að toga ekki í tauminn er þetta námskeið fyrir þig.
Stundum er það að labba, aðeins of spennandi svo hundurinn missir sig og togar nánast af þér hendina. Við vinnum með væntingastjórnun og slökun á þessu námskeiði ásamt taumgöngu. Að geta slappað af úti skiptir öllu máli til þess að fá góða taumgöngu.
Á námskeiðinu förum við vel í taumgönguna með því markmiði að hundurinn geti labbað með slakan taum, þefað í rólegheitum, að hann geti slappað af úti og nái að veita þér athygli þegar þess þarf.
Ath. að þetta er ekki hælgöngunámskeið, þótt við munum fara í gegnum æfingar sem fá hundinn til að labba við hliðina á þér.
Allir geta verið með hvort sem þú/hundurinn hefur áður farið á námskeið eða ekki.
Þetta námskeið eru 4 skipti eða í 4 klst alls.
1.Tími: er tími inni í 1 klst þar fer ég yfir æfingar sem þig gerið með hundinum ykkar heima.
2. Tími: 1 klst munum við halda áfram að setja inn æfingar og æfa með hundunum inni.
3. Tími: 1 klst útitími
4. Tími: 1 klst útitími
Tímaplan:
28.apr mán kl. 17 / 30.apr mið kl. 17 / 3. maí lau kl. 11 / 10.maí lau kl. 11
26. maí mán kl. 18:30 / 28.maí mið kl. 18:30 / 31. maí lau kl. 12 / 4.jun mið kl. 20
Einka-taumgöngutímar:
Einnig er hægt að panta einka-taumgöngunámskeið sem er samtals 2 klst sem skiptist niður á 2-3 skipti. Verð 30.000kr, til að panta byrjar þú á að senda inn skráningu og svo sendum við tilbaka greiðslu upplýsingar.
Ef þið eruð með hund sem á erfitt með að vera innan um aðra hunda þá komið þið í fyrsta tímann án hundsins og lærið þar aðferðir og æfingar sem þið vinnið með í rólegu umhverfi, svo getið þið komið með hundinn í seinni tímana eða bætt við einum einkatíma við í lokin sem kostar fyrir þátttakendur kr. 10.000
Taumgöngunámskeið 4 skipti - 4 klst
- 28. apríl - kl. 17 - sjá tímaplan neðar á síðunnni
- 25. maí - kl. 18:30 - sjá tímaplan neðar á síðunni
Skráning
Taumgöngunámskeið
-
Senda fyrst inn skráningu áður en greitt er fyrir námskeiðið