Lífsleikninámskeið

Lífsleikninámskeið hentar öllum sem vilja einkanámskeið.
Hvort sem þú vilt vinna með vandamál eða hlýðniþjálfun.

Algeng atriði sem unnið er í á þessu námskeiði er:
Gelt
Gestakoma.
Innkall
Hræðsla
Kvíði
Árásagirni
Getur ekki verið einn heima/bíl
Togar mjög mikið í tauminn.
Hlustar ekki á fólkið sitt.
Sjálfstjórn (stelur mat, dóti, fer á staði sem hann má ekki).

Lífsleikninámskeiðið er einkanámskeið og getur byrjað hvenær sem er.
Námskeiðið er 4 klukkutímar og verður hægt að skipta þessum tíma niður í nokkur skipti eða einingar þar sem hver eining er 30 mínútur. Fyrst er atferlisviðtal sem tekur 1,5 klst. Eftir það er ákveðið hvernig næstu tímar verða, hvort þeir verða í klukkutíma eða hálftíma en það fer eftir því með hvað við ætlum að vinna í tímanum.
Þú færð sendan ítarlegan spurningalista sem þú fyllir út og sendir til baka áður en við hittumst.
Í atferlisviðtalinu förum við yfir spurningalistann og greint er með hvað þarf að vinna. Þið fáið heimaverkefni eftir fyrsta tímann og eftir það er ákveðið hvenær við hittumst næst. Það getur verið vika, tvær eða þrjár og fer það alveg eftir því hvaða heimaverkefni þið fenguð. Hvaða æfingar og heimaverkefni þið fáið fer alveg eftir því hvaða atriði þið viljið vinna með.
Innifalið í námskeiðinu eru fyrirlestrar sem eru til á upptökum á netinu núna vegna covid. Fyrirlestrarnir eru um merkjamál, stress, atferli og fleira.

Verð: 48.000kr
innifalið eru 4 klst verkleg þjálfun. 
5 netfyrirlestar um merkjamál, stress og atferli. sem og innkall og styrkingu.

Athugið að sum stéttarfélög, eins og VR og Efling, taka þátt í að styrkja hundanámskeið allt að 50 %.

Þetta námskeið gefur ekki afslátt af hundaleyfisgjöldum.

Hafðu samband
Ef þú telur að hundurinn þinn þurfi á lífsleikninámskeiði að halda, hafið samband við okkur með tölvupósti á hunda@hunda.is.

Bóka námskeið

Sendið póst á hunda@hunda.is  til að panta lífsleikninámskeið

Nánar um námskeiðið

Sendu okkur póst á hunda@hunda.is fyrir nánari upplýsingar.

Önnur námskeið

Merkjamál hunda er fyrir þig ef þig langar að kynna þér betur hvernig hundurinn þinn tjáir sig en finnst grunnnámskeið vera of stór pakki.Kynntu þér málið
Framhaldsnámskeið eru tilvalin fyrir þá sem eru með góðan grunn en vilja læra meira. Æfingarnar gagnast hvort heldur sem er í daglegu lífi eða í hlýðni. Hver vinnur á sínum hraða.Kynntu þér málið
Farið er í hugmyndafræði klikker þjálfunnar og hvernig við getum notað klikkerinn til að móta hegðun. Á námskeiðinu kennum við hundinum skemmtilegar kúnstir með klikkerþjálfun.Kynntu þér málið
Grunnnámskeið hjá HundaAkademíunni hjálpa þér að leggja góðann grunn fyrir framtíðina. Námskeiðið veitir afslátt af hundaleyfisgjöldum á höfuðborgarsvæðinu.Kynntu þér málið