Að kalla hundinn til þín er það eitt af því mikilvægasta sem þú kennir honum, ekki bara til þess að hundurinn verði ekki til vandræða, heldur einnig til að koma í veg fyrir að eitthvað komi fyrir. Að fá  hundinn til að hlusta á þig úti, þegar allt annað er svo spennandi er þjálfun, þjálfun og aðeins meiri þjálfun. 

Hvað finnst hundinum þínum mest spennandi að elta, eða hlaupa að? Fólk, hundar, fuglar, hestar, kindur, kanínur, kisur, hlauparar, hjól eða hreinlega bara fjúkandi laufblöð?

Við erum ekki að fara drepa niður veiði-eðlið í hundinum heldur munum við vinna með það til fá hundinn til að vilja miklu frekar hlaupa til þín þegar þú kallar.

Ath. Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiði. Eða náð að þjálfa sjálfir grunn-hlýðni æfingar.  Á grunnnámskeiði er farið í grunn-hlýðni sem skiptir mjög miklu máli fyrir gott innkall. Er þetta því “framhalds námskeið” fyrir þá sem hafa náð grunnhlýðni og ágætis innkalli þegar er enginn truflun í gangi

Verð

22.000 kr með hund
9.000 kr án hunds*
Sjá muninn á að taka pláss með hundi eða án, neðar á þessari síðu.
Innkallsnámskeið í einkatímum. 3 skipti á 25.000kr. (1 net-fyrirlestur og 2 verkleg skipti)

5 skipti, einn bóklegur fyrirlestur sem þið horfið á vefnum helgina áður en námskeiðið byrjar. Fyrirlestur verður birtur nokkra daga fyrir fyrsta tíma. Svo eru 4 verklegir tímar með viku millibili svo allir fá tíma til að æfa vel.  Tímar eru bæði inni og fyrir utan hundaskólann.

Næsta innkalls

Skráðu þig án hunds

Sumir hundar eiga erfitt með að slaka á innan um aðra hunda, því verður hægt að skrá sig „án hunds“ í tímana en taka fullan þátt í námskeiðinu að öðru leyti.

Innkallsnámskeiðs tímar eru öðruvísi en á grunnnámskeiðinu. Það er mikil bið fyrir hundana, að gera ekkert. Á meðan einn og einn prófar aðeins æfingarnar og svo erum við að horfa mikið á hvort annað. Þegar hundur gerir í tímanum þá er það að hlaupa  fram hjá hinum hundunum, þeir eru þó á bakvið grind eða fjarlægð úti.  Hver hundur gerir ca. þrisvar í hverjum tíma. Sem sagt litið gert í tímanum sjálfum þar sem við erum aðalega að útskýra tæknina sem þarf til þess að æfa þetta og ná þrusu góðu innkalli heima. Gengur aðalega út á að hlusta vel og skilja æfingarnar sem eru æfðar heima.

Þess vegna ná allir sem koma hundlausir í tímana, einnig góðum árangri ef æft er heima samkvæmt plani.

Að mæta með hund:

Það er krafa að hundurinn getur verið innan um aðra hunda ef þú ætlar að taka pláss með hundi. Ef það kemur í ljós að hann getur það ekki þegar námskeiðið er byrjað færist þið yfir á pláss án hunds án þess að endurgreitt sé mismuninn. Þannig getið þið tekið fullan þátt í námskeiðinu að öðru leiti. Þeir eiga ekkert að leika/spjalla saman tímanum en við verðum að sleppa þeim til að hlaupa aðeins og þá kemur fyrir að þeir vilja hlaupa í næsta hund að leika. Þeir þurfa þá að þola smá af því þótt við gerum allt til að takmarka þannig aðstæður.  Á milli æfinga þá er mikið um slökun þar sem hann getur verið að dunda sér með bein eða slappað af.

Ef tík byrjar að lóða á námskeiðinu mætir eigandi hundlaus í tímana sem tíkin er að lóða.

Innkallsnámskið finnst mér eitt af því besta sem ég hef gert fyrir mig og Sönsu tíkina mína. Hún átti það til að leyfa mér ekki að ná sér þegar ég vildi eða þurfti, vildi bara leika eða ekki koma inn. En eftir þetta námskeið kemur hún eins og skot þegar ég kalla og kemur alla leið til mín og ekkert mál að ná henni. Gerir alla lausagöngu svo miklu ánægulegri og auðveldari að geta treyst því að hún komi þegar ég kalla. Ég hef líka lært svo mikið betur á það hvað er að vera hundaeigandi. Kærar þakkir fyrir okkur

Soffía og Sansa

Skráning

Innkallsnámskeið

22.000 kr
  • Pláss með hundi

Innkallsnámskeið

9.000 kr
  • Pláss án hunds