Þetta námskeið er fyrir alla sem eru búnir  með hvolpa eða grunnnámskeið, eða hafa náð að þjálfa hundinn sinn sjálfir í grunn-hlýðni. 

Núna leggjum við áherslu á að auka kröfur, munum opna meira salinn þannig að þeir verða meira innan um hvort annað, sem sagt æfing með truflun.

Þetta námskeið hentar ekki fyrir mjög stressaða, hrædda eða reaktvía hunda. Ekki viss? Hafðu samband við okkur og við metum þetta saman.

Við förum yfir skemmtilegar æfingar sem styrkja sambandið milli hunds og fólksins hans.
Þjálfum hundinn í að hlusta betur til að tryggja öryggi ykkar og þeirra sem þið mætið.

Förum meðal annars yfir:
Fylgja þér betur og athyglisæfingar
Áreitisþjálfun
Styrkja hlýðniæfingar eins og sitja, liggja, kyrr og innkall.
Standa á göngu.
Nota annað en nammi sem verðlaun.
Skilyrða (styrkja mjög mikið) öll þau stikkorð sem eiga að virka mjög vel óháð truflun.
Hælganga.
Betra innkall.

Valdís - Hundþjálfari með hundinn sinn Neró í hælgöngu

Næstu framhaldsnámskeið

Ýtið á dags. til að sjá tímayfirlitið.

Námskeiðið er 5 skipti, fyrstu tveir tímarnir eru 1,5 klst og restin 1 klst. Æfingar verða bæði inni og úti. 
Verð: 26.000kr 

Greiða þarf fyrir plássið við skráningu. Hægt er að millifæra eða greiða með korti hér að neðan.
HundaAkademían
kt: 530821-0560
r: 515-26-8112
Senda þarf kvittun á hunda@hunda.is
Skýring: Nafn á hundi + tegund

Framhaldsnámskeið

Fyrir hunda sem hafa lært grunn-hlýðni æfingar.
26.000
  • Framhalds
  • 5 skipti.