Örnámskeið:

Hvert námskeið eru 3 skipti, hver tími er 1 klst  (3 klst alls).  Þessir tímar henta fyrir alla hunda frá 4 mánaða,  Notast er við klikker í Trix og framhaldshlýðni námskeiðunum.

Trix- 1   Kennum að nota target-prik, fara í áttu, elta target-prik í gegnum braut.  Taka upp hluti og setja í körfu og ýmsar aðrar æfingar.

Trix – 2   Kennum hundinum ýmsar hegðanir: t.d. vinka, skríða, týndur, hring, rúlla, bakka og vera sætur. 

Framhaldshlýðni – Markmiðið á þessu namskeiði er að gera eiganda og hund tilbúin til að geta tekið þátt í rallý-tímum sem eru haldnir úti – eða til að fínpússa upphafsstöðu við hæl, hælgöngu og allar helstu hlýðniæfingar.

Framhaldshlýðni 1 – Kennum: Upphafsstöðu við hæl, kyrr og hælgöngu.

Framhaldshlýðni 2 – Fylgja okkur í 90° beygju, leggjast við hliðina, fara á milli, ganga yfir hindranir í hælgöngu, skipta á milli hægri og vinstri í göngu og standa.

Skemmtispori: Kennum hundinum að rekja slóða, við kennum hlýðnispora þar sem hundurinn þarf að fylgja hverju skrefi.  Þetta er erfitt þefverkefni fyrir hunda og 15 mínútur í svona þefi er á við 2 klst göngutúr fyrir hunda.  Námskeiðið fer fram á nokkrum staðsetningum.

Hundafimi grunnur: Kennum grunnþjálfun fyrir hunda að fara í gegnum þrautabrautir, á hundafimi-grunnur vinnum mest með styrktaræfingar, fara yfir planka, setja framlappir uppá pall, fara í gegnum göng ofl.  Kennum hvernig hundur og eigandi eiga að vinna saman.  Áður en hundur getur farið í braut þarf hann að geta verið með góðan styrk og samhæfingu í líkamanum, rólegur, einbeittur og geta farið eftir fyrirmælum eiganda.    Það munu bætast við fleiri stig í hundafimi þegar fyrsta námskeið er búið.

Næstu örnámskeið

Tímaplan:

Trix 1 – 4. maí sun kl. 11 / 6. maí þri kl. 18 / 8. maí fim kl. 18

Framhaldshlýðni 1 – 4. maí sun kl. 10 / 6. maí þri kl. 17 / 8. maí fim kl. 17

Hundafimi grunnur – 4. maí kl. 12 – 3 skipti 1x í viku á sunnudögum.

Örnámskeið

kr 13.800
  • Vertu viss um að vera búin að fylla út og senda inn skráningu að ofan áður en þú ýtir á greiða fyrir námskeið.
Popular