Krílahvolpatímar

Krílahvolpatímar er fyrir alla hvolpa frá ca 9 til 16 vikna.

Hvolpar þurfa bara hafa fengið fyrstu sprautuna til að geta verið með.

Félagsmótunarskeið hvolpa er milli 3 og 12 vikna. Þá þurfa þeir að upplifa flest allt sem á að vera eðlilegt í þeirra lífi. Þess vegna veljum við að byrja snemma með þjálfun og krílatímarnir ná því inn á þetta tímabil ef þið mætið snemma með þá.

Vissir þú að það mikilvægasta sem þú gerir með hvolpinum og það fyrsta sem þú átt að spá í er umhverfisþjálfun? Ungir  hvolpar þurfa að upplifa eitthvað nýtt á  hverjum degi og allt þarf að vera jákvætt, skemmtilegt og ekki of mikið af því góða í einu.

Krílahvolpatímar er eins og fara með barnið þitt í leiksskóla.

Þarna læra þeir aðeins meira inn á lífið, læra að leika aðra hvolpa sem og slaka á.  Þeir fá að upplifa allskonar dót sem örvar sjón, heyrn, lykt, snertingu í formi þrautabrauta, og leiktæki sem þeir fá prófa. Allt þetta gerir þá öruggari með sig og minnkar líkurnar á hræðslu í framtíðinni.

Eftir skráningu færði sent  Fyrstu skrefin bækling. Þar er skrifað nánar um umhverfisþjálfun, félagsmótun, pissa úti, æfa að vera einn heima og í bíl. Svo við mælum með að vera lesa möppuna áður en þið mætið í fyrsta tímann. Þannig getið þið nýtt tímann að leika við hundinn og getið beðið með nánari spurningar.

Grunnnámskeiðið er hefðbundna námskeiðið sem þú skráir þig á samhliða þessum tímum.

Ræktendur og einstaklingar geta pantað  sér krílatíma fyrir sinn hvolpahóp. hafið samband á hunda@hunda.is

Skráningaferlið:
Eftir greiðslu ferðu inn á Krílahvolatímar hópinn á facebook og skráið ykkur til leiks í næsta tíma. Leiðbeinandi setur inn spurningu á mánudagskvöldum um hverjir ætla að mæta næstkomandi laugardag í tímann. Skráningafrestur í hvern tíma er fimmtudagskvöld kl. 20:00.  Við tilkynnum svo hópana eftir það.

Klippikortið er svo geymt í hundaskólanum.

Hlökkum til að sjá ykkur öll 🙂

Verð og fyrirkomulag

Krílahvolpatímar 5 skipti: 15.900kr
Grunn og krílahvolpatímar – 5 skipti klippikort: 55.000kr*
Grunn og  krílahvolpatímar – 10 skipti klippikort: 63.000kr**

*Tilboðsverð ef keypt er bæði grunn og klippkort saman fullt verð (60.900kr). 

** Grunn og krílahvolpatímar 10 skipt henta fyrir smáhunda sem geta verið í kríla þangað til þeir eru milli 4 til 5 mánaða og fært sig svo yfir í  smáhundapartý tímana. 

-Greiða þarf fyrir kortið fyrirfram við skráningu. Ekki er tekið við greiðslu í tímanum.
-Klippikort gildir í 1 ár frá útgáfudegi. Eitt klipp fyrir eitt skipti á hvern hvolp.
*Ath að ónotaðir tímar fást ekki endurgreiddir.

Skráningaferlið:
Fyrst kaupir þú klippikort hér á þessari síðu. Fyllir út skráningu og gengur frá greiðslu.

Eftir það ferðu inn í Krílahvolpatímar hópinn á facebook og skráið ykkur til leiks í næsta tíma.

Leiðbeinandi setur inn spurningu á mánudagskvöldum um hverjir ætla að mæta næstkomandi helgi í tímann. Skráningafrestur í hvern tíma er fimmtudagskvöld kl. 20:00.  Við tilkynnum svo hópana eftir það. Fyrsti hópurinn er alltaf kl. 12 og þá eru oftast yngstu þar eða þeir sem eru að mæta í fyrsta skiptið.

Ræktendur eða hópar geta fengið einka krílahvolpatíma fyrir hópinn sinn. Tíminn er 60 mínútur og má nýta tímann fyrir fjölda að eigin vali.

Til að panta hópatíma þarf að senda póst á hunda@hunda.is

Staðsetningar: 

Skemmuvegur, Kóp. Bleik gata neðra plan. Keyra götuna alveg út í enda og halda áfram niður fyrir. 

Skráning

Fyllið út skráningaformið og veljið pakka. Ef þið veljið grunnnámskeið líka getið þið valið dagsettingu sem hentar best, ef þið eru ekki viss alveg strax haða lota hentar best er hægt að sleppa því að velja lotu og við spjöllum saman um það í email síðar. 

Eftir að þið hafið ýtt á senda skráningu hér að ofan þá þarf að ganga frá greiðslu hér að neðan. Hægt er að greiða með annað hvort millifærslu eða korta greiðslu í gegnum greiðslusíðu Teya. 

Ath að sum stéttarfélög styrkja hundanámskeið, ef þið ætlið að nýta styrk þá þarf greiðandi að vera sá sem ætlar að nýta styrkin. 

 

Ef þú vilt  millifæra:
HundaAkademían
kt: 530821-0560
reikngsnúmer: 515-26-8112
Senda þarf kvittun á hunda@hunda.is
Skýring: Nafn á hundi + tegund

Mikilvægt er að vera búin að fylla út skráningu hér að ofan fyrst og senda inn. 

Greiða með korti

Veldu hnapp hér að neðan til að greiða með korti.  Þá færist þú yfir á greiðslusíðu Teya. Eftir greiðslu færðu tölvupóst frá okkur með Fyrstu skrefin bækling