NoseWork

NoseWork er nýjasta æðið í hundaheiminum, sem gengur út á að nota þefskyn hundsins með því að leita að lykt í ílátum, ílátaleit og efnaleit (svona eins og lögreglu- og fíkniefnahundar læra).

Þessi þjálfun ýtir undir hið stórkostlega þefskyn hunda með því að nýta áhuga þeirra á að leysa verkefni. Nose Work hentar hundum af öllum stærðum og gerðum og er hannað fyrir þá sem leita að rólegu verkefni sem veitir bæði hundum og eigendum þeirra frábæra umbun. Með því að nýta einfalda leitarhæfileika hundsins byggir þjálfunin upp sjálfstraust, losar um andlega og líkamlega orku og styrkir tengslin milli hunds og eiganda. Allar hundategundir geta verið með og eru velkomnar.

Það sem er svo frábært með NoseWork er að það er hægt að stunda hvar sem er. Bæði úti og inni heima hjá sér.

NoseWork  – byrjenda
Á þessu námskeiði förum við yfir öll leitar momentin; innanhúsleit, ílátaleit, utanhúslei og farartækjaleit. Eftir námskeiðið getið þið auðveldlega stundað þessa frábæra íþrótt hvar sem er. Námskeiðið fer fram inna- og utandyra.

NoseWork – framhald 1.
Framhald af NoseWork 1. Á þessu námskeiði förum við dýpra í taumvinnu með hundinum, lærum að setja upp leitarplan og lærum að vinna betur sem teymi með hundinum.  Unnið með innanhúsleit og ílátaleit.  Æfum okkur í mismunandi aðstæðum.  Námskeiðið fer fram að innandyra á mismunandi stöðum.

NoseWork framhald 2.

Á þessu námskeiði förum við yfir utanhúsleit og farartækjaleit, hvernig við setjum upp leitarplan, vinnum með tauminn, hvernig lyktarkeilur virka fyrir hundinn, hvernig hiti, raki og vindur hefur áhrif á leitina. Tímarnir fara fram utandyra á mismundandi stöðum.

NoseWork er hægt að æfa hvar sem er bæði úti og inni. Þú getur jafnvel skellt í leit meðan þú ert að elda, til þess að þreyta hundinn vel fyrir kvöldið.

NoseWork - byrjenda námskeið:

Skráning

Til að staðfesta plássið þarf að ganga frá greiðslu. Hægt er að greiða með millifærslu eða greiðslu síðu hér að neðan. Ath að ef þið ætlið að nýta stéttarfélagsstyrk þarf greiðandi að vera sá sem ætlar að nýta styrkinn.  VR og Efling styrkja sem og nokkur önnur félög í formi tómstunda, fræðslu, eða varssjóðsstyrk.

Ef þú vilt millifæra 
HundaAkademían & 4 Hundar

kt. 510325-1840

bnr. 0537-26-12948


Senda þarf kvittun á hunda@hunda.is
Skýring: Nafn á hundi + tegund

NOSEWORK - NÁMSKEIÐ

36.000
  • Vertu viss um að vera búin að fylla út og senda skráningu að ofan áður en þú ýtir á greiða fyrir námskeiðið.
Popular