Allir hundar geta sporað.
Að spora er að láta hundinn rekja slóð. Hvort sem það er að leita af manneskju, dóti/hlut eða nammi. Skemmtilegasti leikurinn til að gera með hundinum úti í göngutúrum.
Við tökum jú eftir því hvað hundar þefa mikið í göngutúr. Þetta er þeirra aðal áhugamál. Svo hvernig væri að búa til sporaleik þar sem við leggjum slóð sem hundurinn á svo að rekja.
Að spora veitir hundinum mikla andlega örvun, það er róandi fyrir hundinn og hundurinn verður vel sáttur og þreyttur eftir á.
Við getum kennt öllum hundategundum spor og bæði hvolpum sem eldri hundum. Svo framalega sem þeir hafa nef og hafa áhuga á að nota það þá geta þeir sporað.
Kennt verður innanbæjarspor, við byrjum með nammi í sporinu og fjársóður í endanum sem hundurinn lærir að leita af. Það það er í byrjun nammi hrúa, en getur svo í framtiðinni verið dót eða annað spennandi að finna.
Eftir þetta námskeið getið þið látið hundinn rekja ca 100-300 metra spor með fáa eða enga nammi bita í sporinu sjálfu.
Leiðbeinandi er Ingó sem er bæði NoseWork þjálfari og spora/viðvangsleits-þjálfari einnig er hann virkur með hunda í björgunarsveit.
Skráning á sporanámskeið
Verð: 18.000kr
3 skipti – 1,5 klst hvert skipti ca.
Ýtið á dagsetningar til að sjá tímayfirlit.
- 30. ágúst kl. 19. hver tími er 1,5 klst (dags. 30/8 - 6/9 -13/9) - Biðlisti
Til að skrá á námskeið þá fyllir út formið hér að neðan. og velur greiðslu leið í kjölfarið. Ath að plássið er bara staðfest eftir greiðsluna.
Hægt er að skrá sig á biðlista með því að fylla út skráningu hér fyrir neðan. Annars er laus pláss á NoseWork sem hefst 7 sept
Ef þú vilt frekar millifæra
HundaAkademían
kt: 530821-0560R
Reikngsnúmer: 515-26-8112
Senda þarf kvittun á hunda@hunda.is
Skýring: Nafn á hundi + tegund
Sporanámskeið 15. júní
-
Sporanámskeið 30. ágúst