Krílahvolpatímar er fyrir alla hvolpa frá 9 til 16 vikna.  Mælum með að byrja þegar hvolpurinn er í kringum 9-10 vikna.

 Hvolpar þurfa bara hafa fengið fyrstu sprautuna til að geta verið með.

Vissir þú að það mikilvægasta sem þú gerir með hvolpinum og það fyrsta sem þú átt að spá í er umhverfisþjálfun? Ungir  hvolpar þurfa að upplifa eitthvað nýtt á  hverjum degi og allt þarf að vera jákvætt, skemmtilegt og ekki of mikið af því góða í einu.

Krílahvolpatímar er eins og fara með barnið þitt í leiksskóla.
Þarna læra þeir aðeins meira inn á lífið, fá að upplifa allskonar dót sem örvar sjón, heyrn, lykt, snertingu. Svo fá þeir að hitta aðra hvolpa á svipuðum aldri og fá að prófa að leika, ef þeir vilja.  Í  hverjum tíma er sett  upp mismunandi dót og brautir sem þeir fá fullt af góðu nammi fyrir að þora að kanna betur. Allt á hraða hvolpsins svo þetta verður skemmtileg upplifun.
Við vinnum líka með að æfa hvolpinn í að geta slakað á eftir að hafa verið æstur. Það er svo alltaf tími fyrir smá umræðu um hvolpauppeldið, eins og hvolpaglefs, pissa úti og að þjálfa þá í að vera einir heima.

Þegar þú kaupir 5 skipti eða fleiri færðu sent pdf möppuna Fyrstu skrefin. þar er skrifað nánar um umhverfisþjálfun, félagsmótun, pissa úti, æfa að vera einn heima og í bíl. Svo við mælum með að vera lesa möppuna áður en þið mætið í fyrsta tímann. Þannig getið þið nýtt tímann að leika við hundinn og getið beðið með nánari spurningar.

Krílahvolpatímar eru ekki með hefðbundnu námskeiðssniði. Þú kaupir klippikort og mætir í þá opnu tíma sem passa þér. Það er þema í hverjum tíma sem er farið yfir. Það eru atriði sem hvolpaeigendur er að velta fyrir sér, sem er ekki tekið fyrir á grunnnámskeiðinu.
Grunnnámskeiðið er hefðbundna námskeiðið sem þú skráir þig á samhliða þessum tímum.

Ræktendur og einstaklingar geta pantað  sér krílatíma fyrir sinn hvolpahóp. hafið samband á hunda@hunda.is

Staðsetning.
Námskeiðin eru haldin við Skemmuveg 40 í Kópavogi (Bleik gata). Gatan er keyrt út að enda og heldur áfram niður fyrir. Gott að skoða vel hvar skólinn er því það er annars erfitt að finna.

Hlökkum til að sjá ykkur öll 🙂

9Verð og næstu námskeið

6 tímar klippikort: 15.900 kr
Krílahvolpatímar + grunnnámskeið: 57.500krTilboðsverð þegar greitt er saman:  (fullt verð 60.900kr)

 Krílahvolpatímar eru á laugardögum:

Krílahvolpatímar eru á laugardögum um hádegi. Hver tími er í klukkutíma.
Ath þeir sem eru að koma í fyrsta skipti eru í fyrsta hópnum, sem oftast er frá 11:30
við erum oftast með 3-4 hópa svo við röðum í hópa eftir aldri og tegund.

Nýjung: Eldri -kríla (frá 16+vikna)  sem er á sunnudögum frá 11:30

Sjá hvenær tími verður á facebook krílahvolpasíðu).

Skráningaferlið:
Fyrst kaupir þú klippikort hér á þessari síðu og gengur frá greiðslu.
Eftir það ferðu inn í Krílahvolatímar hópinn á facebook og skráið ykkur til leiks í næsta tíma. Leiðbeinandi setur inn spurningu á mánudagskvöldum um hverjir ætla að mæta næstkomandi laugardag í tímann. Skráningafrestur í hvern tíma er fimmtudagskvöld kl. 20:00.  Við tilkynnum svo hópana eftir það.

Athugið að ef þú ert að kaupa kort í fyrsta skiptið er gott að þú ert tímalega (að minnsta kosti sólahringur) að kaupa kortið svo við náum að afgreiða ykkur.
Klippikortið er svo geymt í hundaskólanum.

Viltu vita hvort það sé  laust í næsta tíma? Skoðaðu facebook hópinn og þar sérðu skráningar og líka hvaða tegundir eru að fara mæta.

*Greiða þarf fyrir kortið fyrirfram við skráningu. Ekki er tekið við greiðslu í tímanum.

*Klippikort gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Eitt klipp fyrir eitt skipti á hvern hvolp. Ekki er nauðsynlegt að nota kortið fyrir sama hvolpinn. Ath að ónotaðir tímar fást ekki endurgreiddir.

*Ef þið náið ekki að nýta öll skiptin í krílahvolpatímunum þá er hægt að nota þá í leikja, og opnu tímum eftir grunnnámskeiðið.

Kaupa klippikort: